26febrúar

Gamla Árný!!

Þetta blogg er bara fyrir hana elsku Árný okkar!! Hún á afmæli í dag og eru aðstæður voðalega skrítnar e-ð! Ég og Helga í Mexíkó, Snædís í Californiu og Svala og Lilja fyrir norðan....

Ég vildi allavega senda henni mínar bestu afmælisóskir og von um góðan dag ;)

Arna -sem heldur á ströndina í Tulum- kveður
26. febrúar 2009 klukkan 16:15
Arna Reynisdóttir
1 athugasemd
26febrúar

Hér kemur blogg um Orlando, Bahamas og Kúbu!

Alla malla... kominn mánuður síðan ég bloggaði og ég veit ekki hvernig ég á að segja frá öllu þannig að það komist í eina eðlilega bloggfærslu! Kannski punktaform???

Ég ætla byrja á Orlando:
  • Það rigndi á okkur og var skýjað alveg þónokkra daga... þar fór tanið! hehe
  • Fórum í Universal og Disney, að sjálfsögðu
  • Kiktum í gamla bæinn í Kissimmee
  • Fórum á outta control dinner show í Wonderworks 
  • Versluðum stærri tösku handa mér :)
  • og annars einkenndist Orlando af miklu áti, miklu sjónvarpsglápi og MIKILLI peningaeyðslu því allt í Orlando er suddalega dýrt
Þá næst fórum við til Bahamas sem var þó bara þriggja daga stoppistöð til að komast til Kúbu. Heppnin fylgdi okkur og þessa þrjá daga sem við vorum þarna rigndi allavega einn! En Bahamaeyjarnar eru mjög fallegar og fengum við smá forsmekk af því sem koma skildi.

Við flugum til Kúbu þann 5.feb og bjuggumst ekki við neinu því sögurnar sem við höfðum heyrt voru mjög mismunandi. Flugið var að sjálfsögðu skrítið og þá helst free seating, þar sem allir löbbuðu bara inn í flugvélina og settustu einhversstaðar og svo þegar fólk sem fylgdi sætunum mætti í vélina var þeirra sæti upptekið. Mjög sérstakt.
Við lentum um miðjan dag og þurftum að redda okkur kúbverskum peningun því þú færð hvergi skipt í þá nema á Kúbu, er mér sagt. Eftir það tókum við taxa með svissnensku pari og spöruðum okkur smotteríispening.
Fyrstu kynni voru sérstök. Við settumst upp í soccer-moms bíl sem var hvorki með betli né dempara. Við keyrðum alveg í miðja Havana og það fyrsta sem okkur fannst sérstakt var allt fólkið sem var að húkka far. Fullt af fólki stóð við vegakantinn og hoppaði upp í næsta bíl sem stoppaði. Þetta viðgengst í Kúbu en myndi varla gerast heima!
Hotel Lido tók við okkur í allri sinni dýrð! Hurðahúnninn á baðinu rétt hékk á sínum stað og loftræstingin gustaði inn unaðslegum ilm sem við gerðum ráð fyrir að væri beint úr klóakinu. Gatið sem hafði verið gert fyrir loftræstinguna var þó aðeins of stórt svo þegar ég lá í beddanum mínum horfði ég út á götu í gegnum þónokkuð gat. Við vorum þó heppnar að hafa klósettsetu og klósettpappír en það viðgengst ekkert endilega í Kúbu.
Fyrstu dagana röltum við um Havana og skoðuðum brotabrot af öllu sem hægt er að sjá! Við fórum Obispo, Central Park, Capotillo, Malecon og meira og meira og meira. Á kvöldin fórum við á veitingastaði sem virtust ósköp venjulegir en allir með lifandi tónlist. Eitt kvöldið kitkum við á barinn þar sem Daqurie drykkurinn var fundinn upp og þar sötraði Hemingway óspart.
Á þriðja degi í Kúbu þyrsti mig í djamm en Helga var ekki alveg á sömu nótum. Eftir mat töltum við heim og ætluðum ekki að fara djamma... þar til við hittum einmana norkskan dreng sem vildi endilega fara djamma en vantaði nú einhverja djammfélaga! Ég hélt það nú og við skelltum okkur á allsherjardjamm og á Cafe National. Þar dönsuðu allir salsa við reggieton. Við lærðum þónokkur spor af vinalegu kúbverksku pari en þurftum að hætta þegar allt gekk sem best þegar allir settust niður og galdramaður steig á sviðið. Hann tók ca. 20 mín í að sýna öll atriðin sín og svo byrjuðu allir að dansa aftur. Þá vorum við Helga á barnum, enda ekkert annað að gera í svona hléi, og kom galdrakarlinn og tók nokkur atriði þar sem við vorum látnar halda á boltanum sem varð allt í einu að þremur boltum og svo framvegis.
Næsti dagur var undirlaggður þynnku en þó meiri Helgu megin, hehe.
Næstu daga fórum við Helga til Varadero, svaka fín strönd þar sem all inclusive hótelin eru, og til Viniales, sem er á vestanverðri Kúbu. Í Viniales er svakalega falleg náttúra og fórum við meðal annars í siglingu inni í helli og skoðuðum eldgamlar veggmyndir á einhverju fjalli. Við fengum líka alvöru kúibverskan mat sem bragðaðist alveg ansi vel.
Þegar tæp vika af dvölinni í Kúbu var liðin kynntumst við ansi góðu fólki; tvem norksum stelpum, einum strák frá Sviss og Kanadamanni. Afganginn af dvölinni eyddum við meira og minna í félagsskap þeirra og brölluðum við ýmislegt skemmtilegt eins og að kikka á ströndina í Santa Carla og fara á handboltaleik. Ekki þarf að nefna að við fórum á djammið og það kannski aðeins of oft, hehe! Ég hefði hins vegar ekki viljað sleppa einu þeirra því öll eru þau ógleymanleg og ansi sérstök.
Eitt kvöldið fórum við og dönsuðum salsa heillengi á Hotel Florida áður en við kiktum á einn skrítnasta næturklúbb sem nokkur okkar hafði stigið fæti inn fyrir. Tónlistin, ljósin, dansgólfið og allt var skrítið. Þar dansaði mjög samkynhneigður maður í þykkbotna skóm og það skrítna var að enginn áhorfenda dansaði á meðan hann söng sín tvö lög. Eftir þetta djamm röltum við svo heim (sem var ansi langt) og tókum nokkurs konar túristarúnt í leiðinni því við sáum Revolution Square, eina þekktustu Che mynina og margt fleira.
Annað eftirminnilegt djamm var á Valentínusardag en þá fórum við á flottasta klúbb Havana, staðsettan á 25.hæð í gamla Hilton hótelinu. Við vissum ekki við hverju var að búast og tókum lyftuna upp. Klúbburinn var svo sannarlega flottur, ljósin í loftinu voru eins og stjörnur, marmari og allur pakkinn. Við héldum óspart á dansgólfið og tókum þá eftir því að loftið yfir dansgólfinu var opið. Við vorum sem sagt að dansa á 25. hæð, með ótrúlegt útsýni yfir alla Havana og ekki nóg með það, heldur horfðum við beint upp á stjörnurnar! Rosalegt en þessu djammi var sko ekki lokið.
Við ákváðum að setjast á Malecon, vegginn sem umlykur Havana, og fá okkur nokkra öllara. Við stoppuðum og keyptum bjór en strákarnir vildu endilega kaupa köku vegna þess að það var valentínusardagur og það gerðu þeir. Eins og flestar helgar var veggurinn fullur af fólki og skelltum við okkur inn á milli, drukkum bjór og hökkuðum köku. Við hittum ófáa Kúbverjana og var mjög vinsælt að fá að vera milli mín og Helgu á mynd. Þegar við vorum öll búin að fá sneið ákváðum við að deila gleðinni með okkur og gáfum Kúbverjunum sveitta súkkulaðiköku. Gamla parið sem sat við hliðina á okkur stendur upp úr af þeim sem fengu köku. Þau höfðu setið heillengi að knúsast á veggnum, gamla með rós og gamli (með rommflösku í hægri og kelluna í vinstri) alveg í skýjunum með dömuna sína. Þau voru ekkert smá sátt enda ekki á hverjum degi sem Kúbverjar splæsa í köku. Svakalega gott kvöld og bara eitt af mörgum í Havana!
Ég gæti í rauninni talað endalaust um Kúbu og get ég með sanni sagt að ég er algjörlega heilluð af þessu landi. Allt við þetta land fannst mér spennandi og skemmtileg og ég vil helst fara aftur á morgun!

Nú sit ég á hosteli í Mexíkó, nánar tiltekið Hostel Maya í Tulum. Ég og Hegla komum til Cancun seinasta fimmtudag en héldum strax til Playa del Carmen á föstudegi. Þar tók Bryndís á móti okkur og við tókum heila helgi í að djamma! Ekki leiðinlegt það!

Ég get ekki setið lengur að blogga svo meira seinna?? :D

Arna - sem telur niður í næstu ferð til Kúbu- kveður
26. febrúar 2009 klukkan 02:47
Arna Reynisdóttir
2 athugasemdir
23janúar

Búnar með NY og Alabama... Nú er það Orlando!

Jæja... það er komin rúm vika síðan ég bloggarði síðast svo ég ákvað að nú væri kominn tími til að segja frá öllum ævintýrum okkar Helgu seinustu daga.

Eins og ég sagði frá í seinasta bloggi eru mestu djömmin á miðvikudögum í Montgomery eða réttara sagt Auburn, sem er 40 mínútur frá Montgomery. Við héldum smá teiti í Höllinni enda gott tilefni til þar sem við vorum búin að þrífa íbúðina, breyta henni og búa til nýja koníakstofu, kaupa ilmkerti, fylla nýja barinn og margt fleira til að fínpússa áður ágæta Höll. Flestir Íslendinganna voru að fara djamma og komu þau í Höllina auk nokkura kana. Við héldum svo öll til Auburn á einhvern stað þar sem allir háskólakrakkarnir djamma sem harðast á miðvikudögum. Ég og Helga skemmtum okkur svakalega og þá helst við það að horfa á kanana og þeirra dans- og drykkjarvenjur. Dansinn er all klúrari en heima en þeir hugsa ekki um dansinn þannig, þetta er bara venjan. Djammið heppnaðist ótrúlega vel og prófuðum við Waffle House á leiðinni til að toppa kvöldið!

Næsti dagur var mér rosalega erfiður (guð veit af hverju) en lagaðist mjög fljótt þegar ég, Helga, Halldór, Imba og Arnar fórum á Celine Dion tónleika í Birmingham. Ussssss ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa þessum tónleikum!!! Celine labbaði inn, tryllti lýðinn og tók hvern slagarann á fætur öðrum auk nokkurra nýrra laga. Þar á meðal var All by Myself og Titanic-lagið! Við sungum úr okkur lungun og vorum með gæsahúð nánast allan tímann! Alveg geggjaðir og ógleymanlegir tónleikar!
Daginn eftir Celine Dion sváfum við út, spiluðum öll lögin sem Celine Dion og upplifðum tónleikana aftur og héldum svo á japanskan matsölustað. Þar var einn kall sem eldaði fyrir framan okkur, sveiflaði spöðunum sínum og kastaði matnum út um allt. Eftir matinn fórum við svo heim og ætluðum að taka því rólega því daginn eftir var ferðinni heitið til Atlanta. Við vorum komin upp í sófa og komin í kósýgírinn en nei... Ég og Helga fórum með Íslendingunum á stað sem heitir RockBottom og var þar svaðaleg rokkhljómsveit að spila og aftur skemmtum við Helga okkur við að horfa á allt hitt fólkið. Gellurnar á svæðinu voru virkilega trylltar í frekar ógeðslegu hljómsveitargaurana, hehe! Þessum stað lokaði um 3 og fórum við þá á annan stað í Montgomery sem heitir Doodle Hoppers. Að lokum fórum við heim, Viggi eldaði núðlur og beyglur og við skriðum loks heim í Höllina kl 7. Þá voru 2 tímar þangað til ferðin til Atlanta átti að hefjast.
Halldór reyndi að vekja okkur kl 9 en var svo góður að leyfa okkur að lúra til 10:20. Við vorum komin út í bíl kl 10:30 og löggð af stað til Atlanta. Við spiluðum Sálina alla leiðina og tókum við Helga okkur smá kríu eftir stuttan svefn. Við fórum á sædýrasafnið í Atlanta og skemmtum okkur konunglega og þar er einmitt myndin í bannernum tekin. Eftir sædýrasafnið fórum við á Cheescake Factory og fengum okkur svakalega máltíð. Hugmyndin með að fara þangað var að fá okkur svakalega góða ostaköku (sem þeir eru einmitt þekktir fyrir) en vegna græðgi gátum við ekki hugsað okkur að fá okkur köku... fýluferðin sú! Við fórum svo í mall-ið og versluðum okkur öll e-ð skemmtilegt og þá ber helst að nefna "plether"-leggings sem Halldór fann og fannst mikilvægt að önnur okkar keypir þær. Ég sló til!
Við keyrðum heim og skelltum okkur beint í djammgírinn. Í þetta skiptið fóru allir íbúar hallarinnar á djammið og mikið rosalega var gaman. Við höguðum okkur eins og kjánar allt kvöldið og gera ljósmyndir frá kvöldinu vel grein fyrir því. Meðal kjánalætanna ber að nefna að Halldór "batlaði" við einhvern lítinn blökkumann og get ég með sanni sagt að Halldór rústaði honum algerlega. Eftir alveg svakalega gott kvöld héldum við heim í Höllina og elduðum bestu "eftirdjamm-máltið" sem um getur í Montgomery!!
Á sunnudeginum ákváðum við að vera nú svolítið menningarleg og fara rúnt um Montgomery. Við keyrðum fram og til baka í miðbænum og vorum við aaaalein að rúnta. Í alvöru talað þá var ekki ein manneskja á röltinu og nýttum við það í botn. Við löggðum bílnum bara úti á miðri götu þegar við vildum taka myndir af okkur og t.d. kirkjunni sem Martein Luther King predikaði í í allavega 6 ár. Gaman að segja frá því að Montgomery er ein hættulegasta borg BNA en glæpatíðnin er svakaleg. Við hefðum aldrei farið að rútna um borgina eftir að farið væri að dimma því það er bara stórhættulegt.. en að sjálfsgöðu var hverfið okkar mjög öruggt og gott. :)
Eftir svakalegan rúnt fórum við svo út að borða á Hooters og svo í bíó á My Bloody Valentine í þrívídd. Góður sunnudagur að baki.
Á mánudegi fórum við seinustu ferðina okkar í Wal-Mart, bjuggum til svakalega máltíð (eins og allar máltíðir í Höllinni eru) og fórum í keilu. Helga brilleraði og náði að kasta kúlunni bakvið sig! Ég hélt að það gerðist bara í bíómyndunum!! HEHE! Eftir keiluna fórum við svo heim og bjuggum til dórítosrétt og horfðum á mynd..mmm.....
Þriðjudagurinn fór í að pakka, þvo og kaupa AUM (Auburn University Montgomery) peysur, vúhú!!

Á miðvikudaginn héldum við eldsnemma til Atlanta og tókum flug tll Orlando. Flugið var (í fyrsta skiptið í þessari ferð) ágætt og engin ókyrrð. Og í fyrsta skiptið í þessari ferð fórum við í leigubíl og bílstjórinn vissi hvert við vorum að fara! Skemmtileg tilbreyting! Það eina sem var ekki skemmtilegt við að koma til Orlando var að dagurinn sem við mættum var sá kaldasti sem mælst hefur seinustu 7 árin... sem betur fer hitnaði strax í dag og verður hitinn 22-25°C, vúhú!

Nú erum við sem sagt staddar í Orlando og ætlum að fara í þónokkra skemmtigarða og skoða áhugaverða staði :) Við byrjuðum rólega í dag með því að fara í Florida Mall og erum að reyna koma sólarhringnum í lag eftir sældarlífið í Alabama!

Ég held þetta sé gott í bili og vil ég þakka strákunum (og reyndar bara öllum) í Alabama fyrir frábærar tvær vikur í Montgomery!!

Arna - sem keypti Crocs í dag og hámarkaði túristalúkkið - kveður

23. janúar 2009 klukkan 06:36
Arna Reynisdóttir
6 athugasemdir
15janúar

Sweet, sweet Alabama

Hér kemur ein stutt færsla frá Alabama....

Myndin í banner er að þessu sinni frá sældarlífinu hérna í Montgomery, Alabama. Ég sit í nýja Turtles-bolnum mínum, með nýhristann Nelly og slaka á í Höllinni!
Ég og Helga erum vægast sagt búnar að hafa það huggulegt frá því við komum hingað og ég held það séu mörg, mörg ár síðan ég hef sofið jafn mikið á jafn stuttum tíma.

En byrjum á byrjuninni..
Við þurftum að taka tvær lestar og eina rútu til að komast að LaGuardia Airport í New York og erum allsvakalega sáttar með okkur að hafa náð því í fyrstu tilraun. Þegar við komum á flugvöllinn var búið að seinka fluginu um einn klukkutíma svo við höfðum nægan tíma til að kveðja borgina. Á flugvellinum fóru tveir öryggisverðir að spjalla við okkur og voru þeir ansi opinskáir um margt. Þeim finnst til dæmis allar bandarískar kellingar feitar (og þeir orðuðu það jafnvel verra en ég er að gera núna) þrátt fyrir að reyna "worka out" og voru alveg vissir um það að íslensku genin hljóta að vera ótrúlega góð fyrst ég og Helga erum ekki í íþróttaliði og erum samt í kjörþyngd. Ansi skemmtilegt það.
Við komumst loks í flugvélina og tók á móti okkur alveg sérstaklega hress flugfreyja með ekta Alabama-hreim og taktarnir allir með. Flugið var viðbjóður og erum við Helga farnar að halda að öll flug hérna í BNA séu svona leiðinleg. Það var kveikt á sætisbeltaljósinu nánst allan tímann og nokkrar góðar dýfur í ókyrrðinni. En við komumst heilar til Atlanta og áttum þá eftir að redda okkur til Montgomery.
Við fórum á Greyhound stöðina en fyrir þá sem ekki vita er það helsta rútufélag Bandaríkjanna. Við bjuggumst við 2 tíma rútuferð því það er tíminn sem tekur að keyra beint á milli en nei, við fórum í 4 og hálfs tíma roadtrip. Í rútunni var ansi skrautlegt lið... Fremst voru nokkrir blökkumenn sem ætluðu, að eigin sögn að eignast mig og Helgu, og voru alltaf að reyna spjalla á þýsku. Aftar í rútunni, og allt í kringum mig og Helgu, voru svo hermenn og ekkert lítið af þeim og maður verður að viðurkenna að manni fannst maður öruggari með fulla rútu af hermönnum.
Við komum á Greyhound stoppistöðina í Montgomery kl hálf 12 um kvöldið og ætluðum í sakleysi okkar að panta leigubíl og koma okkur í íbúðina hjá strákunum. Það var aðeins meira mál en við héldum. Í fyrsta lagi er í alvörunni bara einn leigubíll í Montgomery og þurftum við að bíða eftir honum í hálftíma. Að lokum mætti bílstjórinn og ég ákvað áður en við settumst upp í bílinn að spurja hann hvort hann vissi ekki alveg hvert hann væri að fara skutla okkur. Hann hafði ekki hugmynd um það svo við fórum inn og töluðum við konuna sem pantaði leigubílinn. Þessi kona, leigubílsstjórinn og einn annar afgreiðslumaður þarna í Greyhound-stöðinni ræddu í hálftíma um það hvar þetta Saddleback Ridge hverfi væri nú eiginlega í Montgomery! Á endanum ákváðum við að reyna bara á þetta og keyrðum af stað. Eins og fyrri ferðir okkar í leigubíl vorum við Helga að skipast í bílstjóranum alla leiðina og viti menn!! Við komumst loks að leiðarenda!!! VÚHÚ

Höllin (íbúð Kristjáns og Halldórs) tók við okkur í öllu sínu veldi og kunnum við vel að meta. Þrátt fyrir gæðin fannst okkur að við þyrftum nú aðeins að taka til og lappa upp á mjög karlmannlega íbúðina. Við þrifum allt og settum líklega í 20 þvottavélar! Þar að auki fórum við í Wal-Mart, sem er uppáhalds búðin hans Kristjáns, og keyptum nokkra heimilislega hluti eins og tuskur, viskastykki og klósettbusta. Við bökuðum snúða og dúlluðum okkur þangað til strákarnir komu loksins 3 dögum á eftir okkur til Montgomery. Við þurftum að sækja þá vegna vesenis  á flugi og keyrðum við 2 tíma til Atlanta á þjóðvegum Ameríku og brilleruðum með okkar íslenska ökupróf.
Sambúðin er búin að ganga með afbrigðum vel. Við erum klárlega að draga það besta fram í þessum strákum því þeir ætla aaaaaldrei að óhreinka íbúðina eftir að við þrifum hvern krók og kima!! Í seinustu Wal-Mart ferð sáust framfar í hugarfari þeirra mjög vel og keyptu þeir meðal annars veggklukku, lampa og tvö ilmkerti. Sko strákana!!
Daginn eftir að strákarnir komu heim höfðum við það bara kósý meðan þeir komu sér inn í skólamálin. Um kvöldið elduðum við kjúlla fyrir 8 manns og héldum matarboð í "nýju" íbúðinni.
Í gær urðu svakalegar breytinga á íbúðinni og færðum við sófann til að búa til borðstofu! Allt að gerast í Höllinni!!

En fyrir utan svakalega ljúft líf hérna í Alabama er helst að frétta að við erum að fara á Celine Dion tónleika á morgun. Við áttum upphaflega að fara á laugardaginn en hinir íslendingarnir eru að fara á morgun svo við breyttum okkar miðum og verður farin hópferð á morgun!! Það verður án efa magnað og erum við búin að vera hita upp í marga daga, hehe!

Annars verður ýmislegt brasað um helgina. Við erum að pæla að fara til Atlanta og kikka á eitt stærsta sædýrasafn heims og gera e-ð meira skemmtilegt. Svo eigum við eftir að skoða það helsta hérna í Montgomery og er ansi margt sögulegt sem tengist meðal annars stórum skrefum í mannréttindabaráttu blökkumanna. Það verður skoðað næstu daga....

En ég ætla segja þetta gott í bili, það er víst svakalegt djamm í kvöld hérna í Alabama! Segi frá því í næsta bloggi :) Og úps, þetta átti að vera stutt blogg en jæja, hehe

Arna -sem hefur aldrei verið jafn meðvituð um að hún sé ljóshærð- kveður
15. janúar 2009 klukkan 01:50
Arna Reynisdóttir
2 athugasemdir
05janúar

New York beibí!

Myndin í banner er af þessu sinni frá biðinni löngu á Times Square á gamlárskvöld. Við biðum sem sagt í 5 tíma í -8°C en vegna rakans segja þeir að it feels like -19°C!! Geri aðrir betur!

Nú er komin vika síðan ég og Helga komum til New York og hofum við gert allt mögulegt hérna! Byrjum á byrjuninni:
Á Leifsstöð mættum við helmingnum af íslenska handboltaliðinu okkur til mikillar ánægju og varð það til þess að við bjuggum til litla minnisbók um þau "celeb" sem við sjáum á leiðinni. Nokkur nöfn eru komin í bókina en einn er okkur ráðgáta. Við sáum nefnilega einn leikara á röltinu á Manhattan en við munum engan veginn hvað hann heitir eða í hvaða myndum hann lék svo hann heitir "stór, mikill, pínu ljótur, leikur oftast í gamanmyndum" í bókinni. Einhverjar hugmyndir um nafn??
Við fengum skrítið flug með mikilli ókyrrð og sérstakri lendingu. Við tókum strax leigubíl að hostelinu okkar en leigubílstjórinn var alveg kapitúli út af fyrir sig. Hann var alveg eins og Apu í Simpson og vissi nákvæmlega ekkert hvert hann var að fara. Það var GPS tæki í bílnum og á endanum vorum ég og Helga farnar að skipa honum fyrir þangað til loksins við komumst að hostelinu.
Og þá snúum við okkur að hostelinu, hehehehehe!! Það er nákvæmlega ekkert sem bendir til þess að þetta sé aljóðlegt hostel því þetta stendur milli íbúðahúsa í skuggalegum hluta Brooklyn. Þetta er skemmtilega subbulegt; með hálflausum flísum á baðinu, mismunandi gerðum myglusveppa hér og þar, hallandi stigagangi og ekki má gleyma myglulyktinni sem tekur á móti manni þegar maður gengur inn. En sem minnkar ilmurinn af myglunni því ofar sem farið er í húsinu.
Fyrsta daginn fórum ég og Helga að rölta um Manhattan og lærðum aðeins á frekar flókna lestarkerfið í þessari risastóru borg. Daginn eftir fórum við svo í Empire State en það tók ekki nema einn tíma að komast inn í húsin, einn tíma að komast í miðasöluna og svo einn tíma að komast að lyftunni. Þrír tímar í bið og svo eyddum við heilum 5 mínútum í að skoða útsýnið úr háhýsinu, hehe! Við nenntum ekki meir eftir alla þessa bið! Við mælum líka með því að fólk sem er ekki að deyja úr spenningi að fara í Empire State sleppi því bara, hehe!
Þann 30.des komu Tinna og Erna og 31.des er einn lengsti dagur sem ég hef nokkur tíma upplifað! Við vöknuðum frekar snemma og fórum á röltið um Manhattan. Svo ákváðum við að kíkja í Central Park. Þess má geta að það var snjókoma og varð skemmtigangan var því ekkert hrikalega skemmtileg. Við sáum þó margt merkilegt, þar á meðal Strawberry Fields en þar var John Lennon skotinn á sínum tíma. Við fórum svo í indælis Boathouse og létum okkur þiðna áður en við héldum niður 5th Avenue en þar á fræga fólkið flest íbúð og þar á meðal Denzel Washington og Madonna :) Þar eru líka allar fínu og flottu búðirnar eins og Prada, Gucci og fleiri og fleiri. Á röltinu sáum við þessa svakalega flottu kirkju og þar sem við vorum ekki að drífa okkur ákváðum við að kikka inn. Þetta var víst voðalega merkileg kirkja, St. Patricks og er hún alveg svakalega stór og flott!! Án efa flottasta kirkja sem ég hef farið í! Það var mjög kósý að fara í kirkjuna og þá sérstaklega til að losna við allt áreitið frá götum Manhattan. Við vorum greinilega ekki þær einu sem kunnum að meta rólegheitin en það var allt morandi í fólki sem ákvað að taka sér smá kríu.
Við héldum röltinu áfram og ákáðum að snæða áramótamáltíðina á Applebee's. Við tróðum okkur út í allskyns góðgæti og héldum að við yrðum á góðum tíma þegar við löbbuðum í átt að Times Square kl 19:00. Við höfðum rangt fyrir okkur, svooooo rangt fyrir okkur! Við þurftum að byrja biðina hjá Central Park en það er ca. 20 blokkum frá torginu sjálfu. Löggan var búin að setja upp girðingar hér og þar svo enginn komst nær nema að fara í gegnum hlið og inn í sérstök hólf. Við fórum í gegnum nokkur hlið og það var alltaf tékkað í töskunum að einhverju óæskilegu. Við enduðum við 54th Street en það er 12 blokkum frá kúlunni sjálfri. Þar biðum við í 5 tíma í -8°C en vegna rakans segja kanarnir að "it feels like -19°C". Við keyptum okkur allar peysur og ég keypti mér húfu og teppi svo ég myndi nú þola þennan ógeðslega kulda. Við náðum nú ekki yfir það hversu illa klæddir NY-búarnir voru og voru það ófáir sem hlóu að okkur fyrir að vera drepast úr kulda og vera Íslendingar! Við erum ekki alveg jafn harðar og við viljum meina!!! Eftir að kúlan datt, sem var alveg hreint mögnuð upplifun, hlupum við að næstu lestarstöð og drifum okkur heim í hlýjuna.
Á nýjársdag vorum við allar lemstraðar enda búnar að hanga út í kuldanum í 13-14 tíma. Vegna þess hve hressar við vorum fórum við bara í túr böss um Uptown Manhattan og fórum meðal annars í gegnum Upper East Side en þar gerist einmitt Gossip Girl og þar á allt ríka, flotta fólkið heima. Við héldum áfram túrböss daginn og fórum þá um neðri Manhattan, framhjá Wall Street, World Trade Center, Brooklyn Bridge og fleira og fleira. Svo fórum við bara í súpermarket, keyptum okkur mikið af bjór og höfðum það kósý á hostelinu okkar.
Í gær fórum við siglingu um Frelsistyttuna og skemmtum okkur konunglega við túristamyndatökur, hehe. Í dag fórum við svo bara og áttum rólegan rölt-dag um Manhattan og fórum meðal annars á New York Public Library og sáum það mjög mikið af áhugaverðu fólki, hehe.

Þess á milli sem við skoðum skemmtilega staði og röltum um alla borgina eru ferðirnar í underground-ið stór hluti af dvöl okkar í New York! Við erum komnar með þvílíkan einkahúmorinn og skemmtum okkur í hverri ferð, hehe!! Svo eru kvolití-tæm hérna á hostelinu ekki síðri. Við erum komnar með nokkrar góðar myndir og nokkur myndbönd af okkur og öðrum farandsmönnum í góðum gír og ber þá helst að nefna Rafael að syngja "Back for Good" með Take That.

Lög NY eru: Single ladies, What What in the Butt, Show me your Family og Funheitur!!!

Þetta er svona í grófum dráttum það sem við Helga erum búnar að vera bardúsa. Við höfum sett þónokkuð margar myndir inn á facebook en við ætlum ekki að láta neinar hérna svo endilega kikkið þangað :D

Annars er það helst að frétta að ég eignaðist litla frænku í gær!! Brói og Auður eignuðust litla skvísu í gær en ég verð víst að bíða fram í mars að fá að sjá dýrgripinn :)

Jæja... það eru tveir dagar eftir hérna í New York og svo tekur Alabama við, VÚHÚ!

Þangað til næst
SveifluMeistarinn Helga og LipBalm Arna kveðja!!
05. janúar 2009 klukkan 02:05
Arna Reynisdóttir
7 athugasemdir
26desember

Einn og hálfur dagur eftir á Íslandi!

Myndin í banner er af mér og Helgu í útskriftaferðinni á Rhodos. Það eiga væntanlega margar álíka sjúskaðar en skemmtilegar myndir eftir að bætast í safnið í ferðinni miklu en hún hefst einmitt eftir 2 daga!!
Á morgun förum við suður og daginn eftir förum við til New York!! :D Ég er að kafna úr spenningi!!

Annars ætlaði ég bara að skella inn örfáum línum....

Ég er búin að pakka og það kom mér á óvart að ég þurfti bara miðstærðina af flugfreyjutösku! Það sem tekur langmesta plássið er sjúkrakassinn okkar Helgu því við erum öllu viðbúnar! hehe

Ég átti að eignast lítið frænsystkin í gær en það er e-ð að stríða mér og er að láta bíða eftir sér. Ég held það komi 29.des bara af því ég fer 28.des! Þá passar krílið allavega við stríðnina í báðum ættum hehe ;)

Ég er að fara á geggjað djamm í kvöld með öllum stelpunum mínum og svo í árgangspartí! Það verður án efa alveg magnað og svakalega skemmtilegt að hitta allar stelpurnar saman eftir að þær hafa verið splundraðar um allan heim síðustu 3 mán!

En jæja... næst þegar ég blogga verð ég einhversstaðar í útlandinu :D

Arna- ákaflega spennta- kveður
26. desember 2008 klukkan 14:49
Arna Reynisdóttir
1 athugasemd
15desember

Einungis 14 dagar í brottför

Alla malla... það eru 3 vikur síðan ég bloggaði og ég verð nú að skella inn nokkrum línum!!

Myndin í banner er frá því 6.des þegar ég, Bibba, Ragga, Ella, Helga og Lilja skelltum okkur á djammið. Á þessari umtöluðu mynd erum við í bíl með tveimur ungum drengjum sem við þekktum ekki neitt en höfðum heyrt að væru að rúnta! Hehe skemmtileg bílferð á skemmtilegu kvöldi.

Síðan síðast hef ég nú brallað ýmislegt. Eins og ég sagði frá í seinasta bloggi þá kom Palli norður og tryllti troðfullan Sjalla. Jónas hennar Svölu hélt upp á tvítugsafmælið sitt þetta kvöld og byrjaði gleðin þar. Lilja okkar kom heim frá Danmörku þennan dag og að sjálfsögðu mættu hún og Pési í teiti. Það var glatt á hjalla en mín var þarfnast annarsstaðar. Svo var mál með vexti að Gunnar, Amourbarþjónn og handy man með meiru, hélt teiti fyrir okkur barstelpurnar. Við fórum í singstar, drukkum bollu, borðuðum osta og fórum í nokkra drykkjuleiki. Ég vissi það seinna að markmið Gunna var að fylla mig og gekk það markmið alveg glimrandi hjá drengnum.
Við héldum úr staffateitinu niður á Amour og vorum með smávegis dólg. Svo var haldið í Sjallann og ég er alveg viss um að ég hafi skemmt mér alveg hrikalega vel!! Við vinkonurnar vorum víst með þeim skrautlegri í Sjallanum og tókum upp á hinum ýmsu ónefndum prakkarastrikum! Hehehe

Rétt eftir Palla-djammið ákváðum við nokkur úr bekknum að hittast og eiga smá gleðistund saman. Ég, Axel, Sandra, Herdís, Hákon og Sævar hittumst á Greifanum, borðuðum saman og ræddum allt milli himins og jarðar. Þar sem þessir drengir eru ekkert skárri en við stelpurnar var að sjálfsögðu slúðrað og minnti þetta óneitanlega mikið á alla góðu tímana í MA. Alveg rosalega skemmtilegt kvöld ;)

Það næsta sem vert er að segja frá er djammið 6.des, djammið þar sem banner myndin er tekin. Ragga og Bryndís voru komnar frá útlöndum svo við ákváðum að fara á djammið saman. Ég, Helga og Ragga byrjuðum laugardaginn með því að fara í smá verslunarferð og svo á fótboltaleik, Draupnir-Dalvík/Reynir. Ég var búin að gleyma því hvað mér finnst gaman að fara á fótboltaleiki og ætlum ég og Svala að vera afskaplega duglegar næsta sumar, hehe!!
En aftur að þessum laugardegi, þá fórum við næst heim að taka okkur til. Við hittumst heima hjá mér og græjuðum okkur og voru sumir á aðeins meira trúnói en aðrir hehe! Því næst héldum við nokkra í partí hjá Heiðu og Hemma og svo niður í bæ. Ég hitti alveg fullt af fólki og skemmti mér alveg konunglega. Það sem stóð uppúr var klárlega að fá stelpurnar til landsins og taka djamm með þeim og eftirsetulðinu ;)

Daginn eftir djammið, sem sagt sunnudaginn 7.des, vaknaði ég eldsnemma og brunaði á kagganum til Ólafsvíkur. Það tók ekki nema 6 tíma og þá ekki sökum svefnleysis og þynnku heldur var leiðindar skafrenningur og hríð nánast alla leiðina. Ég hafði líka gleymt hversu mikið rokrassgat þetta blessaða Snæfellsnes er! Ég var komin í víkina rétt um 6 leytið og ég og amma Stella fórum saman á Frostrósartónleika kl 9. Mikið gladdi ég gömlu þarna :D hehe
Daginn eftir vaknaði ég um 10, kikkaði á Grundina, fór í Bakaríið, keypti mér 2 ostahorn og brunaði svo heim. Gaman að segja frá því að ostahornin voru búin áður en ég kom að Höfða en fyrir þá sem vita það ekki þá er það 15 mínútum utan við Ólafvík! Ágætis árangur?
Á leiðinni heim hitti ég Hákon Fagra í nýja Staðarskála en nýji Staðarskáli er einmitt alveg hrikalega ljótur og leiðinlegur. En við vorum í samfloti restina á leiðinni og þurftum að stoppa einu sinni þegar ég heyrði svakalegan dink í vinstri hlið bílsins. Hákon hélt ég hefði keyrt á fugl en sá fugl hlýtur að hafa verið á stærð við lítið barn því dinkurinn var svo hrikalega hár! Ekki það að bílinn minn er álíka brimvarinn og áldós... neibb

Svo leið enn önnur vinnuvikan og svo enn önnur helgin. Og hvað haldið þið? Ég skellti mér á djammið :) Í þetta skiptið fór ég á djammið með Brynju Völu. Við byrjuðum kvöldið vel og þurftum að klifra okkur leið inn í bílinn hennar BV. Gaman að því, heh! Við fórum fyrst á Amour, svo Kaffi Ak og enduðum í Sjallanum þar sem við vorum alveg til lokunar. Þetta var mjög forvitilegt og skemmtilegt kvöld sem einkenndist af klækjabrögðum bæði hjá mér og BV og öðrum ónefndum aðilum, hehe!

Svo er komið að deginum í dag... ósköp venjulegur sunnudagur fyrir utan það að nú eru einmitt 2 vikur þangað til ég og Helga förum í ferðina miklu!!! Loksins, loksins er komið að þessu!! :D
Hvernig á ég að geta pakkað?? Býður sig einhver fram til að hjálpa mér???

Annars eru bara að fara koma jól.. þau virka nú voðalega ómerkileg þegar ég hugsa um ferðalagið! En hins vegar fylgir jólunum sú gleði að stelpurnar koma allar heim! vúúúúúhúúúú get ekki beðið ;)


Jæja, þetta er nú komið gott í bili!

Arna -sem er ekki alveg að átta sig á að ferðalagið nálgast hratt- kveður



p.s. skellti inn nýrri könnun! :D
15. desember 2008 klukkan 01:18
Arna Reynisdóttir
2 athugasemdir
21nóvember

Jæja, það var löngu komið að nýju bloggi!!

Að þessu sinni er myndin í banner frá ferðinni minni suður hérna um daginn. Ég skellt mér sem sagt suður fyrir tvem vikum og skemmti mér alveg rosalega vel!

Ferðin byrjaði kl hálf 5 þegar ég lagði af stað frá Akureyri með nokkra sterka og eina ópalflösku í farteskinu. Ég sötraði nú aðeins á leiðinni og mætti beint heim til Nönnu þar sem hún var með smá hitting. Við skelltum í okkur, skelltum okkur í föt og skelltum okkur svo niður í bæ!
Daginn eftir vöknuðum við í rólegheitunum og Nanna drap mig næstum úr hungri! Það var ekki til neitt að borða og við höfðum meira segja klárað seinustu ostsneiðina um nóttina á samlokurnar okkar. Þar sem ég var nánast látin úr hungri klæddum við okkur og fórum á Pítuna að fá okkur sveittan þynnkumat :) Eftir matinn fórum við svo í heimsókn í Barónstíginn. Þar biðu Logi og Einar í krúttí-búttí íbúðinni sinni. Mér þótti alveg einkar skemmtileg uppröðunin á borðstofunni ,sem er inni í herberginu hans Einars, og stofunni ,sem er í herberginu hans Loga. Allt við þessa íbúð og þessa sambúð er ótrúlega skemmtilegt og þá helst skipulagstöflurnar á veggjunum! Hehe, krúttlegur Janni!
Við áttum kvolití tæm í Barónstíg og héldum svo í Bónus. Vissuð þið að það er hægt að kaupa svokallaða Gleðipinna sem eru 15 frostpinna á 121 krónu í Bónus? Neihhhh ég og Nanna keyptum einn pakka af svoleiðis og þeri voru svo sannarlega Gleðipinnar! Löguðu smávegis af þynnkunni sem var alsráðandi þessa helgi!
Efitr Bónusferðina fórum við heim og ég gerði mig tilbúna fyrir afmælið hjá Guðrúnu og Hauk. Ég fékk far með Söndru og kæró og mættum í fullt hús af Ólsurum! Það var alveg ótrúlega skemmtilegt að rifja upp alla góðu tímana í víkinni og rifja upp hvað við vorum hrikalega asnaleg!! Allavega fannst mér það mjög skemmtilegt og ekki var verra að drekka sig fullan á geggjuðu bollunni hennar Guðrúnar! Hehe ;)
Eftir afmæli var svo hittingur í Barónstígnum, aftur! Þar voru fullt af menntskælingjum og gladdi það mitt litla hjarta að hitta þetta fólk aftur! Djammið á laugardeginum fól meðal annars í sér:
  • Dansinn minn og Sigga við Hjálma, svona upp á gamla og mjög góða tíma
  • Svarta og hvíta ópalflösku sem kláruðust fljótlega og áttum ég og Nanna smá þátt í því
  • Ég fékk fullt af knúsum frá hrikalega mörgum
  • Trúnó með gömlum vinum
  • "what, what in the butt"
  • "bird, bird, bird is the word!"
  • Jómfrúarferð á B5 þar sem allir ný-atvinnulausu Kaupþingsmennirnir voru að djamma
  • Fullt af góðum myndum og þar á meðal af Horatio Cane
  • Nanna gleymdi veskinu sínu og þurfti að krossleggja fingur í hvert skipti sem við fórum inn á staði
Sem sagt alveg magnað kvöld í alla staði :)
Ég og Nanna vöknuðum daginn eftir, mishressar. Ég fór að hakka í mig dórítosrétt á meðan Nanna fór að æla! Úps!
Við þurftum nokkra tíma til að leggja okkur og aðeins ná áttum áður en við brunuðum í Keflavíkina til að heimsækjana hana Árný okkar í risaíbúðina hennar! Við fórum á Trocaderos eða hvað það nú heitir og þess má geta að ég og Nanna vorum alveg hrikalega flottar í tauinu. Ég var í Europris buxum, sem eru reyndar bestu buxur í heimi, og gúmmítúttum... og það úti að borða. Ég kippti mér hins vega ekki upp við það þegar bólufreðin stúlka afgreiddi okkur. Ég var þó nokkurn vegin með hausinn í lagi, nokkurn veginn! Hehe!
Ég og Nanna tókum svo svakalega bílferð og hefði hver sem er verið heppin að heyra í okkur syngja: "Dont want to miss a thing" með Aerosmith :)

Jæja, ég held ég hafi kannski farið aðeins of ítarlega í þessa helgarferð en ástæðan er bara sú að ég skemmti mér alveg rosalega!

Síðan ég kom heim hef ég aðallega verið að hugsa um heimsreisuna og verið að reyna sauma jólakjólinn minn. Það gengur bæði svona upp og ofan... en reddast þó allt! Og þess má geta að það eru 5 vikur og 2 dagar þangað til ég og Helga leggjum í hann! :)

Um helgina ætla ég að kaupa jólagjafir, stússats aðeins með Svölu og svo er það að sjálfsögðu Palli í Sjallanum á morgun! Vúhú!! Ég ætla fara í Sjallann og skemmta mér, ég ætla ekki að vera lamin og ekki lenda í neinu veseni, hehe! Wish me luck ;)
Svo kemur hún Lilja heim til Akureyrar á morgun og ekki er það nú leiðinlegt! Lilja litla loksins að koma heim!

En núna ætla ég að krassa partý í Rimasíðunni.


Arna - sem finnur upp á nýjum ævintýrum á hverjum degi- kveður
21. nóvember 2008 klukkan 21:12
Arna Reynisdóttir
7 athugasemdir
04nóvember

"og ég aftur snýýýýýýýýýýýý..... kem ég heim á nýýýýýýyýý"

Hér að ofan sjáið þið gott dæmi um það hversu ótrúlega vel ég og myndavélin eigum saman. Þarna er ég ekki að reyna gretta mig, ótrúlegt en satt, en er hins vegar haugaþunn daginn eftir staffadjamm með Hótel Gíg. Alveg ógleymanlegir og góðir tímar!

Af mér er annars ágætt að frétta. Síðan seinasta færsla varð til hefur ekkert merkilegt átt sér stað nema að kúlan mín er að hjaðna. Ég er hins vegar með eitthvað á þeim stað sem að kúlan var, mjög hart og ekki aumt viðkomu... Ætli mér hafi vaxið varnarbein við gagnaugða? Hver veit?

Í gær voru nákvæmlega 8 vikur í ferðina miklu! Ég og Helga ætluðum að panta það sem eftir var um helgina en satt best að segja nennti ég ekki að standa í svoleiðis. Ég var að vinna á Amour um helgina og það kom mér alveg svakalega á óvart hvað Íslendingar geta verið hrikalega leiðinlegir í glasi, úff...
Það gekk hreinlega allt á seinasta laugardag.
  • Einn barþjónn veikur
  • Tveir dyravarðanna mættu hreinlega ekki
  • Útlendingaslagur á stéttinni fyrir utan Amour
  • Gamlir perrakallar spurðu mig óspart hvað ég kostaði
  • Útlendingahözzl þar sem ein stelpa og 15 strákar áttu í hlut, minnti helst á dýralífsþátt
  • Hópslagur
  • Gamall kall var með dólg, endaði upp á slysó eftir að hafa skreytt gólfið með blóði sínu
  • Loggan kom allavega einu sinni til að róa lýðinn
  • Tveir brunaboðar brotnir
  • Klósettið var á floti og allt í volli
  • Heillangan tíma tók að koma fólki út og voru þónokkrir með leiðindi
Á sunnudaginn hringdi Gunni, sá sem er yfir vaktinni minni, og kom með þá hugmynd að hafa vaktadjamm þar sem við ættum allt gott skilið eftir þessa furðulegu vakt!

Ég á það til að hugsa alltof mikið um allt og ekkert. Í ekki svo gamalli færslu taldi ég upp nokkra hluti sem ég hlakka til. Þar var meðal annars:
  • Nú eru aðeins fáeinar vikur í að menntskælingjar og djammfélagar fara að hrúgast norður og allt verður eins og það á að vera
  • Svala útskrifast og við verðum allar sætar og fínar saman í Rimasíðunni..... og kannski eilítið hífaðar
  • Ég eignast lítið frændsystkin um jólin!
  • Það styttist í ferðalagið mikla

Þegar ég hugsaði um allt það skemmtilega sem er framundan datt mér í hug nokkrir hlutir sem sitja á mínum ímyndaða og draumum fyllta "to do" lista:
  • Ég verð að fara á Real Madrid - Barcelona leik... eða allavega leik þar sem ég fæ að sjá Cannovaro!
  • Ég verð líka að fara á Man Utd leik með pabba og bróa.
  • Mig langar að fara í málaskóla einhversstaðar útí heim og læra nýtt tungumál, jafnvel ítölsku.
  • Fara í fallhlífastökk.
  • Fara í interrail um Evrópu eftir kortinu sem ég og Snædís gerðum fyrir tæpum 2 árum síðan.
  • Fara á alvöru tónleika eða alvöru tónlistahátíð.
  • Hitta Robbie William, helst vera gellan sem hann togar upp á svið og gefur sveittan sleik! hehe

Jæja, komið nóg af punktum í dag.. Ég ætla leggjast til rekkju !

Arna - sem fer suður í kósý weekend næstu helgi - kveður
04. nóvember 2008 klukkan 00:36
Arna Reynisdóttir
2 athugasemdir
27október

Hefði betur sagt: "hættu að fokkinn ýta í mig" seyðisfjörður-style

Jæja... að þessu sinni er myndin í banner af mér og Atla. Þarna sitjum við sjúskuð og ógeðsleg á leiðinni heim af djamminu seinasta laugardag en fyrir þessa bílferð átti sér ýmislegt stað!

Laugardaginn seinasta fór ég sem sagt á djammið. Ég og Salka fórum og hittum nokkrar stelpur sem vinna á Amour og héldum svo í Sjallann. Kvöldið byrjaði vel og hitti ég fullt af fólki sem ég hafði ekki séð lengi, mjög gaman.
Þegar cirka hálftími var liðinn síðan ég kom í Sjallann lennti ég í svona skemmtilega fyrirferðamiklum gaur á dansgólfinu. Reyndar var stappað í Sjallanum svo flestir virtust nú frekar fyrirferðamiklir, hehe. En þessi strákur varð e-ð pirraður þegar ég ýtti honum á móti og hann sneri sér við og leit ógnandi á mig. Svo virðist sem hann hafi hugsað með sér: "æi, ok.. þetta er stelpa" og sneri sér aftur við.
Ég nennti hins vegar ekki að dansa við hliðina á þessum gaur lengur og labbaði í áttina frá honum og út af dansgólfinu. Ég var ekki búin að taka þrjú skref þegar ég fann svakalegt högg á vinstra gagnaugað. Þá hafði gaurinn komið á eftir mér og lamið mig. Flottur!

Ég greip um hausinn og hugsaði: "shit hvað þetta er vont!" og svo fattaði ég að strákurinn hafði lamið mig og þá hugsaði ég bara: "ertu ekki að grínast?!?!?" og mikið varð ég reið!! Ég sneri mér við og ætlaði sko aldeilis að ræða við þennan blessaða strák! Þá sá ég Atla og gaurinn rúllandi um gólfið en Atli hafði verið að dansa rétt hjá þegar gaurinn lamdi mig. Ég hljóp að þeim og reif í Atla! Það lak blóð um allt andlitið á honum og niður á skyrtuna og ekki leit hinn betur út.
Við vorum öll dregin inn í eldhús þar sem blóðið var þurrkað af okkur og ég fékk kælipoka á kúluna sem var að myndast ansi hratt á hausnum á mér. Ég settist upp á bekk við hliðina á lambakjötsafgöngum og smávegis kökubita. Sjúkraliðarnir komu og skoðuðu okkur, löggan talaði fyrst við Atla áður en hann var sendur upp á slysó. Svo kom hún og talaði við mig. Þeir voru ekkert alltof hressir í löggunni þegar ég spurði hvort Bjarni frændi væru nokkuð að vinna, var að reyna smá smalltalk en nei...

Sjúkraliðarnir sögðu að það væri ekki gáfulegt fyrir mig að fara sofa strax ef þetta hefði nú verið smávægilegur heilahristingur en mig svimaði einmitt svakalega þegar ég reyndi að standa upp af eldhúsbekknum svo ég ákvað bara að sitja lengur. Kökubitinn við hliðina á mér varð alltaf girnilegri og girnilegri.
Á meðan ég sat og kældi kúluna fylgdist ég aðeins með gangi mála inní eldhúsi. Dyraverðirnir höfðu varla undan við að stöðva slagsmál og ég hugsaði með mér að nú væru Íslendingar algerlega að missa það. Einhver fertug gella lamdi eina átján ára í spað og mætti ég þessari 18 ára uppá Slysó seinna um kvöldið.
Eftir 2-3 tima setu í eldhúsinu var Sjallinn búinn. Atli Páll var svo elskulegur að koma mér heim en þar er einmitt myndin tekin, aftur í bíl á leiðinni heim úr Sjallanum með stuttu stoppi á Slysó. Plásturinn á Atla felur 6 sporin í augabrúninni en það sést ekki nógu vel kúlan á mér, þar sem roðinn er við kinnbeinið.

Viðburðaríkur Sjalli svo ekki sé meira sagt. Sunnudagurinn fór í það að reyna sofa því ég var með hrikalegan hausverk sem leiddi frá kúlunni. Þvílíkt bull! Sem betur fer sést ekki mikið á mér og held ég að þriggja tíma kælingin í eldhúsinu hafi reddað því sem reddað var.

Fyrir utan glataðan Sjalla er lífið á Akureyri hrikalega rólegt. Í seinustu viku komu Sandra og Herdís á americas í Rimasíðunni og gleymdum við okkur alveg og spjölluðum til hálf 2. Mjög huggulegt kvöld ;)
Á fimmtudeginum fór ég út að borða með Guðrúnu Sigríði, hehe! Við spjölluðum í 3-4 tíma um allt og ekkert og þótti mér það mjög gaman... Vonandi líður ekki jafn langur tími þangað til ég hitti hana og hina Ólsarana næst.
Svo er Lilja loksins að fara koma aftur til Íslands þann 21.nóv! Ekki leiðinlegt það :D

Annars tel ég bara niður til jóla, vúhú! Þá koma allir og taka eðlilegt djamm með mér ;)

Lag bloggsins er Underwear með FM Belfast. Skemmtilegt lag með hljómsveitinni sem ég uppgötvaði á LungA!


Af forrvitni prófaði ég að skrifa Arna á youtube.com og þetta kom upp: http://www.youtube.com/watch?v=LBZHHX79PbU


Arna -kúluhaus- kveður

27. október 2008 klukkan 21:09
Arna Reynisdóttir
9 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Arna Reynisdóttir
  • Netfang: fallbyssu_jona@hotmail.com
  • Staður: Akureyri
  • Heimilisfang: Helgamagrastræti 50
  • Símanúmer: 8682433
  • Atvinna: apótekari, barþjónn, verðandi heimsborgari

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvar eiga Arna og Helga eftir að skemmta sér best?

Atburðarteljari

Klukkan