enn og aftur er komin mánudagur,djö.... og nú kemur stutt yfirlit :D
á föstudaginn var stuttur og góður skóladagur (reyndar eru allir dagar stuttir og góðir skóladagar)
ég fór í ræktina á föstudaginn! já, þið lásuð rétt! ég, Arna, fór í ræktina!
má formaður Team Fat fara í ræktina??
á föstudagskvöldinu leigðum við atli spólu og keyptum nammi... öööööömurleg mynd sem atli valdi, góður atli!!
á laugardaginn mætti ég hrikalega hress í vinnuna... helga, árdís, kolla og fleiri að vinna og skemmti ég mér ágætlega :)
skemmtilegt að segja frá því að ég fór á subway í hádeginu í vinnunni.. og í fyrsta skiptið síðan ég byrjaði að borða subway fékk ég mér ekki köku með bátnum!! obb obb obb
árdís átti nokkur skemmtileg komment eins og henni einni er lagið :D spurði t.d. helgu hvort hún mundi fara upp á ákveðna manneskju fyrir 50 mills!
eftir skemmtilegan vinnudag fór ég heim, át eina sneið af heimagerðri pitsu og fór svo út að borða með Hagkaup.. við unnum keppnina milli hagkaupsbúðanna og ákváðum þá að fara út að borða, við vinnum reyndar alltaf en það er annað mál! hehe
eftir matinn fór ég svo heim til árný þar sem stelpurnar voru aðeins að gæða sér á partídjús..
ég var edrú í þetta skiptið! obb obb obb
nanna kom svo til árný og var hún alveg óvenju skemmtileg þetta kvöld :D hehe ;)
ég fór heim um klukkan 1 og fór í freyðibað og svo að sofa :D það var geggjað
sunnudagurinn fór svo í vinnu.... og ég var komin með flensuna! djö!!!
nú er kominn mánudagur og ég er með fuuuuuuuuuuullt af hori!!
reyndar er þrefalt hádegi svo lífið er aðeins að vinna með mér í þessum veikindum :D
á morgun er stór dagur; skóli, tannsi !, skóli, konukvöld :D vúhú!!
þetta var helgin í hnotskurn :D
Arna -uppfulla af hori- kveður
p.s. örn og ragnhildur eiga afmæli á morgun og vil ég óska þeim til hamingju í þessu bloggi ef ég skyldi nú gleyma að óska þeim til hamingju á morgun :D
12. febrúar 2007 klukkan 16:19
Arna Reynisdóttir 4 athugasemdir
útskriftaferðin nálgast óðfluga og í dag var verið að kynna tilboðin fyrir okkur og mér leist bara mjög vel á bæði... þetta verður geggjað sama hvert við förum :D jeeee
ég held ég hallist meira að rhodos, marmaris virkar samt alveg fínt
það eru 202 dagar í svaðilför okkar menntskælinga! AAHHH
ég fékk þvílíkan fiðring þegar það var verið að tala um hvað bjórinn kostar þarna úti og hvað það er langt í ströndina og skemmtistaðina og svo framvegis.... geggjað!
skólinn byrjaður á fullu, það er svo sem ágætt
er í rosalega mikið af eyðum sem henta mjög vel í miðdegis-kríu
ég ætla ekki að djamma um helgina, issss isss isss
ætla bara vinna og liggja í leti um helgina
atli er einn heima svo ég ætla nýta nuddbaðkarið í botn!
í gær fór ég til svölu, nip/tuck stendur alltaf fyrir sínu og að sjálfsögðu góði félagsskapurinn :D
ég ætla að halda aðeins áfram að tala um landsliðin í handbolta.... það þýska er nú ekki af verri endanum :D var að horfa á úrslitaleikinn og fannst þeir bara nokkuð hot!
ég og litla syss tókum okkur til í gær og bökuðum köku....
reyndar hrærði ég bara með handþeytaranum af því litla syss er tognuð í hendinni.... og ég bjó til kremið, mmmmmm
það að ég bakaði köku og kom ekki með kökuna til svölu vakti ekki lukku, úps
47 dagar þangað til atli fer út
5 dagar í spangalosun!
18 dagar í afmæli hjá árný.. hvað eigum við að gera þá? :D
annars lítið í gangi :D
fahitas bíða mín :D
Arna svanga kveður
08. febrúar 2007 klukkan 19:22
Arna Reynisdóttir 7 athugasemdir
ahhhh.... ég er enn í sæluvímu eftir helgina ! við stelpurnar fórum sem sagt á föstudagskvöldið í bústað á illhugastöðum og áttum góða helgi :)
við mættum í bústaðinn og byjuðum á að raða gleðidjúsnum í ískápinn :D
svo tók við dórítosréttur, spil og heitur pottur!
drukkið og horft á sjónvarpið eftir pottinn.... gæti það verið betra??
morguninn eftir vöknuðum við í mismunandi ástandi en ekki vegna drykkju, undarlegt en satt! svo var mál með vexti að nanna, helga, svala og hafdís gistu í kojunum og vöknuðu með verki allstaðar, hehe
ég og svala rústuðum morgunmatnum, borðuðum sem sagt laaaaaangmest!
horfðum á leikinn, ísland-man ekki... og á meðan við horfðum á leikinn tók snædís til verka sem rafvirki, og eftir 3 tíma vinnu hafði hún lagað útvarpið!
við höfðum sem sagt aðeins laskað útvarpið kvöldið áður... eða nei, það var kári sem skellti hurðinni á það :D hehe
lilja bakaði köku! mmmmmmm.... við létum krem og svo aukakrem!! mmmmmmm.....
svo fóru nánast allar í pottinn en ég og helga tókum saman matinn sem var fahitas... í leiðinni skelltum við í annan dórítosrétt ferðarinnar!
atli kom til okkar og var eini strákurinn í hópnum :D hann kom með kærkomna hluti af öllum toga, svo ekki sé nefnt fullur handapoki af snakki!
við horfðum á miss doubtfire og nanna og svala leiddu okkur í gegnum myndina með söng og öllu tilheyrandi! fííígaróóóóó!!
lilja sá dverga í öllum myndum og þáttum sem við horfðum á..
fórum í pottinn, drukkum, hlustuðum á tónlist og spiluðum á gítarinn...
kúrðum í margfaldri samloku í svefnsófanum okkar snædísar :)
árný tók vægast sagt trylltan dans fyrir okkur hinar... klárlega dansari ferðarinnar!
snædís átti það til að liggja í gólfinu og er öll bólgin og marin eftir það :D rafvirki ferðarinnar !
svala átti skemmtileg spassaköst, meðal annars þegar hún réðst á hafdísi með sængurverinu og festi hana inni í því! hehe! skemmtiatriði ferðarinnar!
nanna átti spékoppa ferðarinnar og "opin augu þegar hún sefur" ferðarinnar, hehe :)
lilja var klárlega bakari ferðarinnar!
hafdís var óheppnust ferðarinnar, fékk ógeðlsegan kodda og sæng og allt... og svo lenti hún í svölu :D hehe
helga var laaangbesti aðstoðarkokkur ferðarinnar :D
sem sagt: geggjuð ferð í alla staði, hefði ekki viljað breyta neinu :D takk stelpur+atli :)
og nú er skólinn bara byrjaður af einhverri alvöru
vonandi verður kvöldkaffi hjá árný í kvöld en veitingarnar verða í boði nönnu :D
ég ætla láta inn nokkrar myndir frá því um helgina en ALLS ekki allar ;)
ég ætla láta þetta duga í bili
Arna -sem þakkar fyrir besta félagskap sem hægt er að hugsa sér- kveður
05. febrúar 2007 klukkan 22:33
Arna Reynisdóttir 7 athugasemdir
já hér vitna ég í góðvinkonu mín, stínu, og segi: "today is the day"!!
við stelpurnar leggjum af stað í bústaðinn eftir um það bil einn og hálfan tíma!!
þetta verður geggjað!
ég, svala og árný fórum að versla áðan og mmmmmm.... dórítos réttir, saltstangir, fahitas og fullt af "hollum" mat !! :D
ég fór í skólann í dag og var þetta annar "alvöru" skóladagurinn nema hann var voðalega kósý... frí í öðrum tíma og svo tvöfaldur efnafræði
efnafræðitímarnir eru himnaríki núna þar sem við erum með jóhann, einn besta kennara skólans að mínu mati!
fengum að fara fyrr í hádegi af því við mundum eftir Hunds-reglunni í efnafræðinni :D
kynntumst nýja líffræðikennaranum , hún virðist ágæt.... og svo skólinn bara búinn !! JEEEEEE
atli er að koma heim á um það bil sama tíma og við ætlum að bruna í illhugastaði...en hann er allavega kominn heim frá svaðilför sinni til kebblaííík city!
ég var að lesa fréttablaðið í morgun og allt í einu birtist mynd af þessum líka gullfallegu mönnum! jújú...mynd af guðjóni val og alexander!! þetta er nú ekki í fyrsta skiptið sem ég segi þetta en voðalega eru þeir flottir í landsliðinu!
nýjasta uppáhaldið mitt í landsliðinu er markús máni ! úffffff....
ég mætti í skólann í morgun og sótti stundatöluna mína... hún er frekar götótt! á þriðjudögum er ég í skólanum til 10 en þá er ég líka í fríi til 15!! sjæse...
vaknaði 9:10 og átti að mæta niðrí skóla 9:30... það tókst! góð arna!!
fékk þessa skemmtilegu stundatöflu :)
fór í prófsýni í stæ, eðl og líf.... vá hvað stærðfræðikennarar eru heftir í mannlegum samskiptum!! AAAHHH
ég ætla tækla öll fögin á næstu önn!! újeeeee
ég er að pæla í að fara stunda líkamsrækt... sérstaklega þar sem það eru 210 dagar í útskriftaferðina!
ég hef heyrt út frá mér að það séu komin tvö tilboð í útskriftaferðina :D mig langar til rhodos ?!?!
í dag er miðvikudagur og það þýðir að leið mín liggur til svölu í kvöld !! JÁ
nip/tuck!!! AAAAAHHH
ég er búin að láta inn myndir síðan um helgina
þær eru geggjaðar en ég mátti ekki láta inn allar myndirnar, eins og t.d. myndina af stærstu undirhöku í heiminum!!!!
atli kemur heim á föstudaginn en þá fer ég einmitt í bústaðinn og verð yfir helgina! djö....
bústaðaferðin er að skella á og erum við búnar að gera innkaupalista :D svo skynsamar ungar stúlkur :D
ætla segja þetta gott í dag :D
Arna -sem er með tóma stundatöflu- kveður
31. janúar 2007 klukkan 18:10
Arna Reynisdóttir 14 athugasemdir
á föstudaginn fór ég smá rúnt með helgu og katrínu vinnufélugum og fékk ég smá rímændör á hvað ég er orðin gömul.... sérstaklega þegar vinir þeirra voru á 10/11 fylleríi!!
eftir að ég skutlaði haggagellunum fór ég til árný.. ég, nanna, lilja og árný fórum smá út og enduðum í lúgu( hjá silju
við borðum ekki neitt óhollt svo við fengum okkur kál og vatn sem silja útbjó rosa vel :D
á laugardaginn var svo vinna... og það var gaman því nú var mín vinnuhelgi
það átti sér ýmislegt stað í vinnunni, t.d.kjúklingabitar baðaðir í sápu og svo steiktir... eða hvað??
á laugardagskvöldinu fór ég svo til svölu og við vorum allar þar nema hún árný okkar... hún var bara spök heima í þetta skiptið
en við drukkum nokkra öllara og tókum nokkrar vægast sagt skrautlegar myndir sem koma von bráðar! á þessum myndum komu ýmis ný svipbrigði í ljós og heimsins stærsta undirhaka leit dagsins ljós og ég hef nú séð ýmislegt í gegnum tíðina!
eftir skemmtilegt spjall og drykkju fórum við á capone, allar nema svala... hún þurfti að vinna klukkan 8 daginn eftir
á capone var hörkustuð! nokkur spánarlög og gleði....
mjög svo lávaxinn maður var að reyna við nönnu.. og þegar ég segi mjög lávaxinn þá er ég að meina 150!! flottur tappi þar á ferð!
lilja, atli og nanna áttu hreinlega dansgólfið!
lilja dansaði róbott-dansinn með atla en nanna og atli ákváðu að tjakka fólk!
ég hef sjaldan séð neinn dansa róbottinn á jafn skemmtilegan hátt og þau tvö! hehe
viktor ruglaðist aftur á mér og hófí... það er að segja hélt aftur að hófí væri kærastan hans atla! kemur viktor!!
svo fór ég heim klukkan tæplega 4 til að mæta hress í vinnuna í morgun... það var ágætt
mér finnst gaman að horfa á handbolta þessa dagana.... er það af því landsliðinu gengur prýðilega eða af því guðjón valur og alexander eru svo flottir?
atli fór til keflavíkur í dag og verður í viku... ég verð að fara venja mig við að vera án hans því það eru bara 2 mánuðir þangað til hann fer til MIAMI! djö....
jæja... ég ætla slútta þessu næturbloggi mínu og segja góða nótt :D
Arna -nýjungagjarna að blogga á nóttunni- kveður
29. janúar 2007 klukkan 07:22
Arna Reynisdóttir 10 athugasemdir
ég hef nú brasað alveg ýmislegt í fríinu skal ég segja ykkur :D
ég fór með henni snæju blö í smá leiðangur í gær... við fundum gleraugu fyrir hana og vonandi fer hún að sjá eitthvað núna!
komumst að því að hún er með sjónskekkju líka... og skökk augu ! hehe
það eru reyndar allir með skökk augu, sagði konan, en samt gaman að þessu
ég fór til svölu í gærkvöldi og við horfðum á nip/tuck og pepper dennis... það er sem sagt komin ný hefð: nip/tuck í staðin fyrir americas!
lilja hneykslaðist aðeins á nip/tuck en ég veit að hún fílaði allt þetta rugl
ég var hjá svölu til að ganga eitt og var mjög gaman :D
ég verð að segja litla sögu.. við sátum sem sagt fjórar, ég, lilja, nanna og svala, uppá sjónvarpsloftinu hennar svölu. svo heyrði ég í einhverjum niðri og bjóst við það væri jónasinn hennar svölu en hugsaði með mér "hvar er halldór?". og ég spurði svölu: "svala hvar er halldór?" og þá tók svala sig til og öskraði í áttina niður: "HANN ER HJÁ INGA" því hún hélt að einhver niðri hefði verið að spurja.. kemur svala! HEHE
vá hvað pepper dennis er samt leiðinlegur þáttur! SJITT
í matartímanum fyrir nokkrum dögum var dinglað hjá okkur í skálateignum og ég hljóp til dyra og stóðu ekki tveir vottar fyrir utan... voru að reyna segja mér að peningar eru ekki allt í lífinu og að blóðgjöf sé röng... ég var ekki alveg sammála þeim og þeim líkaði ekkert alltof vel við mig, held ég !
planið næstu daga er að liggja í leti... það er best :D
mamma á afmæli á laugardaginn og ég verð að redda afmælisgjöf frá okkur systkinunum...því eins og auður orðaði svo vel þá er ég ekki vitlausust af okkur systkynunum.... :D
það virðast allir vera falla í einhverju.... og svo var okkur sagt að 2.bekkur væri erfiðastur! neiiiiiiii
er fólk að fara djamma um helgina?
ég er að vinna um helgina á mínum vinnuhelgum svo það verður gleði með haggafélugunum :D
jói fel er að rústa skoðanakönnuninni!!
jæja kids..
Arna -sem er að mygla í fríinu- kveður
25. janúar 2007 klukkan 20:55
Arna Reynisdóttir 8 athugasemdir
ég vaknaði í alsælu.. ég ilmaði eins og öskubakki og hverjum líkar það ekki ! ég fékk fiðring í magann og hugsaði: "inna?" og drullaði mér að tölvunni. fór á innu og opnaði einkunnir.... fiðringurinn í maganum orðinn óbærilegur! og hvað kom fyrir ekki... þessir kennarar hefðu eins getað skrifað: " arna heimska" með stórum stöfum við öll fögin, svo ánægð er ég með einkunnirnar mínar. ég fór inn á msn í leiðinni og talaði við fólk.. það virðist vera að kennarar þurfi að fella hvern nemanda áður en nemandinn útskrifast því margir féllu í einhverju fagi en samt eru bara fjórar einkunnir komnar inn... gleði gleði gleði!
eftir þessa skemmtilegu (mikil kaldhæðni) innu-stund ætlaði ég svo að fá mér að borða... ekkert til. jæja, þá ætlaði ég að horfa á sjónvarpið en nei... stöð 2 ekki inni og ég nenni ekki að horfa á tónlistarmyndbönd. ég fékk mér normal tortillaflögur (sem er í raun maís með salti, ekkert bragð) og rauða sósu í morgunmat. gleði gleði gleði!
ég tók hins vega gleði mína á ný eftir að ég talaði við árna björn, hann sýndi mér stutt myndband af mjög svo offeitu barni sem veltist um af hlátri... takk árni :D
já.... þetta er nú aldeilis gleðirík blogg !
ég verð að fara hugsa betur um útlitið, kaupa mér ljósakost, fara í strekkingu,fara í læbó, aflita hárið og losna við vírvirkið, því gáfurnar virðast vera gefa sig...
ætla skella inn myndum af staffadjamminu :D
ég borðaði kleinufisk í gær, kleinufiskur=djúpsteiktur fiskur, og það er í fyrsta skiptið í...jahh..10 ár sem ég borða fisk...reyndar hef ég borðað harðfisk af bestu lyst en ég meina hver borðar ekki harðfisk! ég er stolt af mér :D
ég vona bara að öllum hafi gengið vel í prófunum og haldi jákvæðninni ef ekki gegnur vel...
Arna -testböster og fishböster- kveður
23. janúar 2007 klukkan 20:10
Arna Reynisdóttir 13 athugasemdir
nú líður að seinasta prófinu! það er á morgun og ég er ekki byrjuð að læra, úpps. svo kemur sá tími sem maður fer inn á inna.is sjö sinnum á dag í von um eintómar tíur. eftir þessa önn verð ég fegin ef ég næ.... það eru mörg prófin sem ég er að ná með 46 stigum ! nei nei.... þetta er rúst!
efnafræðiprófið á föstudaginn var erfitt....djööööö
það er gott að hlusta á Sean Paul-lagið Temperature fyrir próf
á föstudaginn varð elva 19 ára... vá hvað við erum öll að verða gömul!!
við fórum heim til elvu, borðuðum, horfðum á sjónvarpið, borðuðu, spjölluðum og borðuðum aðeins meira... best í heimi!
ég lét inn nokkrar myndir frá föstudagskvöldinu :)
á laugardaginn fór ég að vinna... þetta var ekki vinnuhelgin mín og ég saknaði allra skemmtilegu haggafélaganna! :)
ég er að drepast úr strengjum í vinstri hendinni eftir að hafa tekið af fjórum brettum af epla- og bananakössum
ég hélt að stingurinn niður vinstri hendina, sem var stöðugur í gærkvöldi, væri merki um það að ég ætti að fara borða hollar svo ég myndi ekki deyja úr kransæðastíflu fyrir þrítugt
ég fór í staffadjamm með haggafélugum! það var mjög gaman :D hehe
þetta var grímupartí niðrá capone og var fólk alveg glimrandi skemmtilegt í búningum líkt og eyrnaslapi, björk í svanabúningnum og kærleiksbirnir... myndir koma fljótlega :)
ég, heiða berglind, elín inga, vinkona hennar og heiðdís fórum úr partíinu að ganga 12 þar sem við erum allar svo skynsamar ungar stúlkur, vorum ekki að drekka og þurftum að læra fyrir próf daginn eftir
við fórum á rúntinn og slúðruðum aðeins :)
mér var sagt að ég liti alls ekki út fyrir að vita jafn mikið og ég veit...
er það hrós???
ég sá geir ólafs á rúnthringnum í gær!! grrrrrr....... :D
ég fór heim af rúntinum kl 2 og fór að sofa... vaknaði og fékk morgunmat í rúmið :D
á að vera læra...nenni því ekki, er að deyja úr kæruleysi :s
framundan er vikufrí sem ég kýs að kalla veikeisjon viþ cooly lava!! AAAAAAHHHHHH!!
ég lét inn nýja könnun! erfitt val, ég veit :)
seinasta könnun sýndi það að 67% segja að strákar sem eru loðnir á rassinum eiga að bera hann með stolti líkt og árni björn og örn gera.... 15% segja VAX!!
ég ætla segja þetta gott í bili.... seinasta prófið, eðlisfræðiprófið, bíður þess að vera rústað!!
BÚÚÚJJJJJAAAAAAA er uppáhaldsorðið mitt þessa dagana og Aerosmith uppáhaldshljómsveitin !
Arna-búja-kveður
p.s. Taylor er komin aftur í glæstum! hún var dáin!!!! AAAHHH !! p.s2. Bree Timmins er að fara verða goth í grönnum!! HEHE
21. janúar 2007 klukkan 19:48
Arna Reynisdóttir 7 athugasemdir
prófin meira en hálfnuð...og hafa gengið bærilega eða ég veit það ekki! djöfuls killer
þýðir ekkert að væla yfir því :D það eru bara 2 próf eftir, eðlisfræði og efnafræði, en andskoti erfið próf líka !
það hefur ekkert gerst hjá mér seinustu daga en svona til að loka þessari umræðu um köttinn minn þá lenti hún í enn einu óhappinu... hún var að labba uppi á skrifborði systur minnar og þar hafði systir mín kveikt á kerti. kisa var eitthvað að spóka sig þarna uppá og svo fór systir mín að finna þessa svaðalegu lykt.. þá hafði kisa "kveikt" í skottinu sínu.. þannig að núna eru brúnar rendur á skottinu þar sem hárið sviðnaði, lökkí kett!
ég lét nýja mynd í banner! mér finns hún rosalega skemmtileg... þetta var þegar við fórum á sálina í nóvember og þvílíkar pósurnar á þessari mynd! hehe! snædís og lilja alveg að gera !! hehe... næst kemur mynd bara af mér og nönnu af því hún hefur aldrei verið með mér á banner :D ok, nancy??
það er miðvikudagur í dag sem þýðir brjálað góð dagskrá í sjónvarpinu! orpah, americas, nip/tuck og fullt meir! ég get ekkert byrjað að læra í kvöld..... verð að horfa :)
ég get ekki beðið eftir því að fara á djammið.. var að skoða myndirnar mínar og mig langar út að skemmta mér, vill einhver djamma með mér eftir prófin??
ég get ekki beðið að fara í vikufrí eftir prófin!!
jæja...gangi ykkur vel, kæru menntskælingar!
Eagle-A
18. janúar 2007 klukkan 02:22
Arna Reynisdóttir 7 athugasemdir