14janúar

5 próf eftir....

já... prófatíðin er í fullum gangi !! ég er búin að fara í 3 próf, hvert öðru leiðinlegra!

og helgin er búin að snúast eingöngu um stærðfræði!! sorglegt en satt... ég er að fara í sannana-prófið á mánudaginn og dæmaprófið á þriðjudaginn... vona innilega að þeir (stærðfræðikennararnir=mannhatarar) komi með sæmilega sanngjarnt próf!! hehe hverjar eru líkurnar??

en það sem seinasta blogg var um kisuna mína sem spókar sig um, aðeins með hár á loppunum, skottinu og hausnum ákvað ég að henda nokkrum myndum inn af henni.... það sést kannski ekki mikið en í alvörunni er þetta rosalega fyndið !! ef þið skoðið myndirnar þá sjáið þið að hún horfir undan á hverri einustu mynd! hehe... hún veit alveg hvað er í gangi :D hehe

snædís kom með góðan punkt við seinustu færslu... einn dag fyrir langa löngu þá var pínu rok úti en þrátt fyrir goluna vildi kisa fara út. kisa er inniköttur þannig að þegar hún fer út þá er hún í bandi sem er fest við garðhúsgagn á stéttinni hjá okkur (ekki mín hugmynd). og þennan dag vildi kisa sem sagt fara út.. allt í lagi með það og henni var hleypt út. svo þegar mamma var að labba framhjá svalahurðinni sá hún að húsgögnin voru farin að fjúka og veðrið kjárlega búið að versna! en allavega þá var kisa fjúkandi út um allt með húsgögnunum og svo loksins þegar hún kom inn var hún alblóðug og með risaskarð í eyranu..... eða eins og snædís orðaði það:
"Það er nú ekkert svo langt síðan þið skelltuð honum í bandi út í óveður og hann stórslasaðist við það að fjúka um í bandinu og stærðarinnar húsgögn réðust á hann! "


æi ég kann ekki að láta myndir inní færsluna svo ég bjó bara til albúm með kisu :D hehe

en já... ég get ekki hætt að hugsa um útskriftaferðina !! það hjálpar mér líka í gegnum prófatíðina :D hehe en ég hef verið að hugsa um hverjir eiga eftir að gera einhvern skanda og svoleiðis ! ohhhhhhh þetta verður svo gaman...

hér með skora ég á hana svölu mína, eina wma-inginn í hópnum, að koma með okkur í útskriftaferðina :D

jess!! við stelpurnar ætlum að fara í sumarbústað eftir prófin!!

æi ég er farin að sofa...

gúdd lökk tú evrívonn!!

Arna -kisupintari- kveður

p.s. hulda rún átti afmæli í gær :D til hamingju, spánarfélagi !! :)
p.s2: ég er nákvæmlega 9 mánuðum yngri en hulda.... merkilegt??

14. janúar 2007 klukkan 15:08
Arna Reynisdóttir
10 athugasemdir
10janúar

gúdd dei...(sagt með rödd selmu hauks)

jæja... nú fara prófin að skella á!! eftir 2 daga.... eða reyndar einn dag, dagurinn í dag er að verða búinn og ég er ekki nógu dugleg!

það hafa verið miklar umræður um bombukeppnina sem ég ætla að efna til í útskriftaferðinni... og fleiri og fleiri vilja vera með, sem er frábært... sumum finnst eitthvað óheillandi við bombukeppni, halda að spikið hristist í hlaupinu að sundlauginni og svo framvegis. mér finnst hlaupið sjálft það skásta við þetta... svipurinn á manni þegar maður grípur um lappirnar og skellir í vatnið, útlitið á manni þegar maður kemur upp úr vatninu með bikiníið á kolvitlausum stöðum og málninguna og hárið út um allt.. það finnst mér miklu verra!! en það er nú smekksatriði...


ég er með ógeðishálsbólgu og ég fór til læknis í gær að athuga hvort þetta væri nokkuð ógeðið-sterptakokkar.

ég þurfti liggur við að taka stokuna og allt það sjálf því læknirinn nennti því engan veginn!! hann er víst eini lausi heimilislæknirinn í bransanum hérna norðan heiða og ég sá alveg af hverju!!

ég á kisu... og í gær fór hún í sprautu uppi í dýraspítala nema hvað að þegar mamma kom með hana aftur var búið að raka allt hárið af henni!!!!kisa hefur ekki komið undan rúminu mínu síðan hún kom heim! HEHE!! nei það má ekki hlæja af litla greyinu..

það eina góða sem fylgir prófunum er vikufríið eftir prófatíðina... við stelpurnar ætlum að rifja upp gamla góða tíma og skella okkur til skagafjarðar. við höfum farið tvisvar áður og þvílík skemmtun ! eitt skemmtilegasta djamm sem ég hef upplifað þegar við fórum á flöskudjammið í varmahlíð og eitt það fyrsta sem ég heyrði þegar ég labbaði inn  var: " nauu... það eru komnar kjeeellingar!"


en ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni... kannski ekkert blogg fyrr en prófin eru búin

Arna -sem er að reyna hlæja ekki af kisu- kveður


p.s. Böðvar á afmæli á morgun :D  til hammó, kyntröll !!

10. janúar 2007 klukkan 00:37
Arna Reynisdóttir
15 athugasemdir
07janúar

nenni ekki að læra...

ég sit inni herbergi með fullt af bókum í kringum mig og þarf að lesa í þeim öllum... en metnaðurinn er nú ekki alveg í hámarki og ég nenni ekki að byrja á þessu bókaflóði!!

ég fór í skólann á fimmtudag og föstudag... það var svolítið gaman að hitta alla krakkana aftur. örn var búinn að safna kröftum og talaði allann fimmtudaginn!! um ekki neitt eins og vanalega...það er nú samt alveg lúmskt (hvernig skrifar maður lúmskt) gaman að honum :) það var farið í gegnum öll djömmin og allt slúðrið sem fylgdi því... þessi kyssti þennan, hinn kyssti þrjá, sumir fóru heim með einhverjum hottí og svo framvegis. ég heyrði meira að segja um að stelpur hafi lamið einn strák á gamlárs... og það nýjasta er að eitthver strákur kyssti palla!! sá sem veit það má endilega segja mér það :D
ég og árni fórum í gegnum mikilvægustu menn í lífi mínu...og hann setti sig réttilega í hátt sæti
 

ég held ég sé að fara falla í STÆ 503


í gær horfði ég á pirates of the carebkfnv.. veit ekki hvernig það er skrifað.. en hún var fín
 
ég var að tala við svölu í gær og við fórum að tala um útskriftaferðina... á sama tíma í fyrra vorum við að tala um costa del sol... og ég er komin með lítið plan fyrir fyrstu dagana:
- um leið og ég kem til krítat/rhodos finn ég stað sem selur vindsængur og kaupi mér eina, helst með mörgum cup-holders :D

- svo prófa ég sundlaugina og vona að það séu sundlaugaverðir að nafni Hasselhoff og Vin Diesel

- svo forum ég og svala, kannski fleiri, í bombukeppni og vindsængurhlaup

gott plan að mínu mati :)


jæja nú held ég að ég sé búin að blogga um ekki neitt bara til að drepa tímann..

að lokum:

3 dagar í fyrsta prófið

8 dagar í dómsdag minn=stæ 503 prófin

14 dagar í að prófin eru búin...

æi þetta tekur fljótt af.... gangi ykkur vel að læra, lömbin mín!

Arna -sem ætlar að rústa prófunum- kveður


07. janúar 2007 klukkan 19:47
Arna Reynisdóttir
11 athugasemdir
04janúar

prófin að koma...


  • ég stal nokkrum myndum frá snædísi og skellti þeim inn, þetta eru myndir frá öðrum í jólum 
  • 2.jan fór ég á rúntinn með snædísi, lilju og nönnu.... við spáðum fyrir um hvernig árið 2007 á eftir að vera
  • ég held þetta ár verði geggjað... fyrir utan að atli er búin að panta ferð til miami 1.apríl og verður í þrjá mánuði..... :s
  • stelpurnar spá fyrir ári ástarinnar!! ú jeee
  • við sáum fram á það að janúar verður slappur mánuður í djamminu þar sem prófin eru að byrja
  • við ætlum að taka eitt gott djamm eftir prófin !!! JÁÁÁ
  • ég er að fara í lokapróf í ensku á morgun... ótrúlegt hvað hrefna torfa getur troðið miklu efni á eina einingu!!
  • öll hin prófin eru svo eftir viku!! AAAHHH
  • nip/tuck byrjaði í gær og þessir þættir standa alltaf undir væntingum! nú var Cristian að digga mæðgur!!
  • árni var að sýna mér tælingasvipina sína í dag...... grrrrrrrrrrr
  • ég varð næstum fyrir áfalli þegar billó kennari skaut mér 2 metra með rassinum á sér!!
  • grelli ýtti nú aðeins við nönnu með bossanum sínum!
  • ég er orðin rosalega stressuð fyrir prófunum, sérstaklega stærðfræði

ekki mikið meira í dag og líklega ekkert merkilegt næstu tvær vikur... ég held það gerist ekkert spennandi á meðan ég er í prófunum

en þangað til :D
Arna -sem hlakka til djammsins eftir prófin- kveður

04. janúar 2007 klukkan 22:42
Arna Reynisdóttir
9 athugasemdir
03janúar

komin heim :)

gleðilegt nýtt ár :)

vúhú!! ég er komin heim frá borg brjálæðinganna, eins og snædís kom svo vel að orði.. og þá er ég að meina keflavík. en keflavíkin er ekki alslæm :) 

  • ég verslaði ýmislegt í borg óttans; 5 boli, peysu, gammó og fleira
  • ég fann nýtt góðgæti fyrir team fat: olsen olsen bátur.... sem er í hnotskurn SVEITTUR subway! mmm
  • ég rataði um alla keflavík eins og ekkert væri
  • ég fór á pizza hut!! mmmmmm
  • ég náði að festa risatertu undir stuðaranum á gamlárs!! og 3 litlir(ekki ungir heldur litlir) keflvíkingar hlóu að mér!
  • ég keyrði tvisvar til reykjavíkur alein!! rústaði reykjanesbrautinni og náði að rata alveg ótrúlega vel um reykjavík fyrir utan þegar sandra lét mig fá vitlausar upplýsingar og ég keyrði á móti umferð á einstefnu
  • ég komst að því að allar stelpur í keflavík vilja eignast börn þegar þær eru tvítugar.... og það var hlegið að mér þegar ég sagðist ætla vera allavega 30 ára þegar ég eignast krakka
  • ég hitti fullt af ættingjum á gamlárs... það var rosa gaman
  • ég hitti hana söndru mína og við kíktum í kringkuna... það var líka gaman
  • þegar ég les þetta yfir þá fatta ég að keflvíkingar hlóu svolítið mikið að mér!


  • árið byrjaði á því að 10 litlar stelpur pöntuðu ferð til costa del sol og hófu niðurtalningu... sem var þá 9 mán!!
  • ég varð að hamstri í byrjun mars... lét taka endajaxlana
  • varð breisfeis í lok mars ! djö...
  • prófin komu og fóru.. ekkert meira um það
  • leiðinleg önn hófst... full stundartafla og gleði
  • páskarnir eru líklega það sem stóð upp úr þá önnina... þrisvar í sjallann um páskana og þar á meðal fórum við á Hjálma, það var geggjað
  • próf og svo kom sumarið! ég vann allt sumarið í hagkaup...og ég vann með fullt af skemmtilegu fólki :D
  • við stelpurnar bardúsuðum ýmislegt í sumar... fórum meðal annars til dalvíkur á fiskidaginn mikla, til hríseyjar á hríseyjarhátíðina og fórum í vaglaskóg! þetta er fyrir utan venjulegu djömmin :)
  • við urðum allar 18 á árinu og héldum upp á þau með því að koma afmælisbarninu á óvart með kórónu og oftast köku :) ég veit ekki hvað margir klukkutímar af árinu fóru í að föndra kórónur !!
  • versló var fín, minnir mig.... djammaði laugardag og sunnudag
  • þegar leið að lokum að þessu góða sumri var loksins, loksins komið að ferðinni okkar til costa del sol!! og ef þetta er ekki eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert á ævinni þá veit ég ekki hvað!
  • þegar komið var heim frá útlandinu hófst smá sjálfsvorkunnar tímabil hjá nokkrum af okkur stelpunum :D
  • skólinn byrjaði 14.sept (sama dag og við komum heim) og ég byrjaði í 3.U !! samansafn af skemmtilegum krökkum :D
  • önnin hefur verið eitt stórt djamm.... misgóðar hljómsveitir mættu í sjallann og að sjálfsögðu palli, capone, splash partí og svo framvegis!! hvert djamm betra en það næsta og slúðrið fylgir að sjálfsögðu :)
  • ég varð 18 ára og fékk bestu kökuna og flottustu kórónuna, enda stelpurnar komnar vel í æfingu!
  • ég og atli héldum upp á 4 ára afmæli í desember :) ótrúlegt hvað þetta líður hratt
  • svo komu jólin og þau voru góð...
  • og þau eru búin
  • mér fannst skaupið fínt :)

allt of langt blogg :D

Arna -sem tók varla eftir að jólin komu- kveður

03. janúar 2007 klukkan 00:03
Arna Reynisdóttir
7 athugasemdir
29desember

flight insimulator.... eða eitthvað

það eru rosalega blendnar tilfinningar í gangi hjá mér núna!


  • ég er að fara til reykjavíkur á eftir og kem aftur 2.jan
  • ég verð yfir áramótin og missi af djamminu hérna heima og missi af PALLA!! :(
  • mig langar samt að hitta alla ættingjana sem ég hef ekki séð í 4-5 ár!
  • mig langar líka að prófa að djamma í keflavík, það ætti að vera forvitilegt!
  • ég er loksins búin að fá nýju gleraugun mín
  • nýju gleraugun eru ekkert lík gömlu gleraugunum... ég er enn að venjast þessum nýju!
  • í gær komu nanna, lilja, svala, lilja birna og jónas til mín og við spiluðum hættuspilið
  • nanna vann þrátt fyrir að vera með minnsta áhugann á spilinu
  • við spjölluðum aðeins um seinasta djamm og komumst að því að við vorum allar á rassgatinu!
  • ég ætla beint í smáralindina þegar ég kem suður... vúhú
  • ný könnnun
  • ný banner-mynd....ég á leiðinni til ólafsfjarðar með svölu, ég er sem sagt hrædd :)

ég verð að fara klára pakka :D

ég blogga líklega ekki aftur fyrr en 2.jan..... þangað til þá !

Arna -sem kemst vonandi lífs af frá keflavík- kveður

29. desember 2006 klukkan 19:04
Arna Reynisdóttir
9 athugasemdir
28desember

jæja... nú eru komnir 7 dagar síðan ég bloggaði síðast! það hefur ekki gerst áður!! en þessir 7 dagar hafa verið alveg rosalega ljúfir og hafa einkennst af ofáti, svefn og meira ofáti...... lov it!

  • ég vann 20-24.des og var það alveg rosa skemmtilegt ! nema á 24 því þá lenti ég í einhverjum gömlum ljótum karli sem ætlaði að drepa mig af því hann fann ekki HVÍTLAUKINN! (hann öskraði sem sagt á mig)
  • ég vann til 14 á aðfangadag sem var rosalega skrítið... allir voða glaðir nema ljóti karlinn
  • ég fékk tvo pakka í skóinn!!! HEHE
  • jólamaturinn var roooooosa góður og pakkarnir ekki verri :)
  • ég fékk ýmislegt skemmtilegt í jólagjöf; úr, stígvél, snyrtidót, gjafabréf, armband og fleira og fleira!
  • auður og mimmi eru búin að vera hér yfir jólin, það er búið að vera rosa gaman að hafa þau... og svo er amma stella að sjálfsögðu líka!
  • í gærfórum við allar stelpurnar og andri í sjallann... það var mjög gaman nema hvað að snædís týndist um leið og við löbbuðum inn í sjallann... en takk allir fyrir skemmtilegt djamm :)
  • ég hitti sigga gúmmífrænda og binnu frænku í sjallanum í gær, og að sjálfsögðu fullt af öðru skemmtilegu fólki :D það var gaman !
  • sonja kennari fór upp á svið með jónsa og misstu þau sig í trylltum dansi
  • ég er búin að kaupa mér ný gleraugu af því hin týndust! þau eru svolítið mikið öðruvísi en þau sem ég átti og ég er pínu kvíðin að fá þau í hendurnar??
  • ég fer suður þann 29.des kl 14:30..... og ég ætla að fara beint á pitsa hut, mmmmmmmm
  • hvort ætti ég að djamma í keflavík á áramótunum og vera stungin og lamin og allt það eða djamma í reykjavík og eyða mest öllu kvöldinu í röð og vonast svo að ég komist inn á alla staðina þar sem aldurstakmarkið er 21??
  • mánuður í spangalosun!

ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra en óska bara öllum gleðilegra jóla og vona að allir hafi átt jafn góð jól og ég....

ég er eiginlega búin að gleyma hvað ég ætlaði að láta í nýju könnunina þannig að engin ný könnun í dag :D

Arna -sem er búin að borða mjöööööög mikið um jólin- kveður

28. desember 2006 klukkan 00:45
Arna Reynisdóttir
7 athugasemdir
21desember

gleraugnaglámur!

 jæja gott fólk... ég hef voðalega lítið að segja nema að jólin eru að koma!! aaaaaaahhhhhh
og já..... ég er ekki gleraugnaglámur lengur af því mér tókst að týna þeim!! aaaarrrrggggg


ég setti nýja mynd sem banner (árni var ekki að fatta þegar ég segi: "myndin þarna uppi").. þetta er eldgömul mynd af mér og árný heima hjá nönnu... og það er bara þannig að ég myndast eins og fæðingarhálfviti, það vantar bara að ég slefi á þessari mynd!

  • gleraugun mín eru týnd! andskotinn hafi það! ég þarf að kaupa mér ný gleraugu fyrir fullt af pening.... obb obb obb
  • við stelpurnar fórum á greifann á þriðjudaginn, borðuðum og fórum svo í smá pakkaleik.... svala fékk minn pakka sem var fljúgandi belja! ég fékk hreindýrahorn og blikkandi nef
  • í skólanum í gær var nú lítið um kennslu.... í efnafræði fengum við að fara í leik, stelpur á móti strákum. stelpurnar voru að rústa þeim þangað til þeir fóru að svindla!! þannig að stelpurnar unnum í rauninni :D hehe 
  • var að vinna í gær með í jólapakka-vinnugallanum... og vinna aftur í dag, morgun, hinn og aðfangadag!
  • fæ jólapakka frá hagkaup (sem er alltaf stór konfektkassi sem ég skipti í inneignanótu og kaupi mér náttbuxur)..... löööv it
  • ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar! Jááá
  • ég ætla læra um jólin (kemur, arna)
  • auður og mimmi verða hér um jólin, það verður gleði
  • ég er búin að panta flug suður þann 29.des og heim 2.jan.... ég sofnaði hálftíma eftir að ég pantaði flugið og mig dreymdi að ég væri í flugvél sem væri að hrapa!
  • ætla ekki allir á djammið á öðrum í jólum??? vúhú!!!
  • nip/tuck = uppáhaldsþátturinn minn í heiminum byrjar aftur 3.jan!!! ó jeeeee
  • jæja... neigborus bíða mín á stöð 2+

kem næst með jólablogg :D


Arna - blindi jólapakki - kveður


p.s. ég er komin með nýja hugmynd að könnun.... nú fer hver að verða síðastur að kjósa!! :)
21. desember 2006 klukkan 19:10
Arna Reynisdóttir
10 athugasemdir
18desember

róleg helgi :)


já...... helgin var jóla-róleg

  • það sem stóð upp úr um helgina var rosalegur rúntur með honum matta litla
  • ég vann alla helgina með katrínu, helgu og mellunum tvemur; Árdísi og Kollu 
  • ég var í hvítri skyrtu og með rauða slaufu...sem ég breytti síðar í bindi og var eins og verslunarstjórinn
  • ég var klárlega flottasti jólapakkinn í búðinni!! ó jeee
  • sit í kvosinni..... eðlisfræði handan við hornið en þýskt guðspjall að baki
  • ég lék engilinn sem kemur og boðar mikinn fögnuð
  • ég var í æfingu fyrir hlutverkið þar sem ég lék engilinn líka í 5.bekk! :)
  • lærði ekki neitt um helgina en er búin að kaupa allar jólagjafirnar! Jeeeeeaaahhhh
  • ég afgreiddi gamla konu sem var að leyta að hollenskum osti í hagganum... ég held hún hafi verið full eða allavega labbaði hún mjög furðulega og datt á ostavegginn!!
  • ég át örugglega 2 af smjöööööörkremi um helgina :D

jæja... kem með eitthvað aðeins meira krassandi á næstunni :D

Arna -sem leikur þýska engla- kveður :)

18. desember 2006 klukkan 17:09
Arna Reynisdóttir
10 athugasemdir
15desember

góður dagur í gær :D

já... dagurinn í gær var alveg hrikalega góður en ég ætla fyrst að segja ykkur frá bingóinu á miðvikudaginn :) 

  • fór á bingóið, mætti aðeins of seint og rosalega spennt!
  • vann(eða hélt ég hefði unnið) í fyrsta eða öðrum leik, kallaði bingó og hljóp eins og fífl upp að stjórnendum (ragga, dagný og fleiri)... en þá hvíslaði ragga að mér: "arna mín, það var verið að spila um lóðrétta en ekki lárétta línu" og horfði á mig með vorkunnaraugum
  • ég var klárlega skemmtiatriði í bingóinu!
  • ég vann alvöru bingó seinna um kvöldið :) og svo lá leiðin til svölu okkar
  • og dagurinn í gær byrjaði á því að ég fór til tansa og hann sagði mér að ég losna við vírvirkið í lok febrúar eða byrjun mars!
  • fengum út úr efnafræðiprófinu og haldiði að maður hafi ekki bara fengið 10! vúhú!!
  • fór út að borða og í bíó með atla í gær... svona í tilefni dagsins :)
  • fórum á holiday og varð ég fyrir miklum vonbrigðum.... jude law mjöööööög flottur en myndin rosalega kjánaleg á köflum! ætli ég hafi ekki verið búin að gera mér of miklar vonir... atli sofnaði þrisvar sem ég veit um....
  • er að fara vinna á morgun og mér til mikillar gleði er starfsmannafatnaðurinn hvít skyrta og rauð slaufa um hálsinn! ég verð eins og helvítis jólapakki annað eða þriðja árið í röð!!
  • ég held ég ætli ekki í sjallann... og ætla ekki að djamma en það er þá í fyrsta skiptið í margar vikur sem ég fer ekki á djammið :|
  • er búin að æfa jólaguðspjallið á þýsku ALLA vikuna..... æi kannski aðeins ýkt.. allavega í gær og í dag
  • "bílnum" hennar snædísar var stolið í gær... hehe pínu fyndið samt :)

jæja... komið miklu meira en nóg! :D

Arna-með eina góða einkunn í allan vetur- kveður

15. desember 2006 klukkan 22:51
Arna Reynisdóttir
7 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Arna Reynisdóttir
  • Netfang: fallbyssu_jona@hotmail.com
  • Staður: Akureyri
  • Heimilisfang: Helgamagrastræti 50
  • Símanúmer: 8682433
  • Atvinna: apótekari, barþjónn, verðandi heimsborgari

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hvar eiga Arna og Helga eftir að skemmta sér best?

Atburðarteljari

Klukkan